Saturday, July 7, 2007

Myndir væntanlegar

Það er búið að klæða nánast alla aðalhæðina núna og smíða grind fyrir stiga bæði upp og niður. Pétur og Rabbi bró eru að klára þrepin og klæðninguna núna.
Allt fínt að frétta annars. Við erum endurnærð eftir tveggja vikna frí og höfum það bara gott uppá Skaga. Garðurinn hefur sprungið út á meðan við vorum í burtu og alls kyns ný blóm að líta dagsins ljós m.a. rosa flottar eldliljur. Nú þarf að drífa í því að losna við allt drasl úr garðinum svo það sé hægt að slá. Reynum að redda kerru um helgina.

No comments: