Tuesday, January 8, 2008

2008 ár hússins

Gleðilegt nýtt ár!
Við tókum okkur ágætis jólafrí frá húsinu og nú fer allt að komast á fullt skrið aftur. Það er búið að steypa sökkul og gólfplötuna fyrir kjallaraherbergið. Núna þarf að saga út hurðagat yfir í viðbygginguna og svo á eftir að steypa útveggina og gólfið fyrir andyrið/baðið.
Sandra er byrjuð á nýja leikskólanum og þá verður það raunverulegra fyrir manni að maður sé að fara að flytja í þetta sveitafélag ;) Það gengur allt saman rosa vel enda er hún mjög félagslynd og ófeimin.

1 comment:

Anonymous said...

jej jej fréttir :D