Sunday, May 6, 2007

Þriðja helga helgin liðin




"Amma Steina" og Sóla komu á laugardaginn og sáu um barn og heimili alla helgina! (knús) Söndru fannst það sko ekki leiðinlegt og fékk meðal annars að fara í Húsdýragarðinn og gefa máfunum. Við héldum áfram að einangra og rífa út raflagnir, þetta leynir endalaust á sér! Einangruðum kvistina uppi í risi og erum komin af stað með súðina með góðri hjálp frá Slaugu og Sigga (knús).











Fengum líka góðar heimsóknir bæði frá nágrönnum (þetta er alveg yndislegt og hverfi hehe) svo litu Kristín Minney, Begga og Frikki inn og áttu ekki til orð yfir slottinu ;)
Verkefni vikunnar verður svo að klára að einangra og plasta yfir. Síðan má bara fara að klæða veggina!!
Við erum að íhuga að halda tveimur pottofnum og þá eigum við 3 stóra úti í garði ef einhver hefur áhuga. Yrðum alla vega fegin að losna við þá hehe

No comments: