Thursday, May 3, 2007

Status

Risa gámur nr. 3 er núna orðinn ágætlega fullur - við héldum að við myndum aldrei fylla fyrsta gáminn!! Rabbi og Pétur eru búnir að henda út öllum gömlu pottofnunum og meðfylgjandi pípulögnum sem var mikill léttir. Sem betur fer er að koma sumar þannig að hita og rafmagnsleysi trufla ferlið ekki mikið ;) Nágrannar okkar komu og klipptu fyrir okkur limgerðið og settu greinarnar út á gangstétt á verkalýðsdaginn - soldið öðruvísi stemning hérna í hverfinu. Allir hérna í kring eru óvenjulega hressir og kammó. ´
Núna er það bara að einangra og við erum langt komin með aðalhæðina :)

2 comments:

Erna said...

Vá hvað þið eruð dugleg!
Hlakka mikið til að sjá ;o)

Ása said...

Yess, fyrsta kommentið!
Takk ´skan, hlökkum til að sjá þig!